Heilsublað Nettó - Hampur

Page 1

umhverfið

Hampur

- sannkölluð ofurfæða

Hampur hefur verið kallaður fjölbreyttasta nytjajurt jarðarinnar vegna þeirra óteljandi möguleika sem hún býður upp á, en hluti þeirra er talinn upp á myndinni hér til hliðar. Hann er það afbrigði kannabisplöntunnar sem inniheldur ekki vímugjafann THC, eða einungis í snefilmagni (undir 0,2%). Saga hampræktunar nær aldir og árþúsundir aftur í tímann. Samkvæmt kínverskri goðsögn færðu guðirnir mannkyninu eina plöntu að gjöf sem átti að uppfylla allar þarfir þess og var plantan sú formóðir allra kannabis- og hampplantna í heiminum. Í þessari grein verður fjallað um þann hluta hampsins sem nýtist sem fæða. Hampfræ Fræ hampsins eru afar holl og næringarrík. Þau eru orkurík; 30 g af fræjum án skeljar innihalda 166 kaloríur, 19% af ráðlögðum dagsskammti af bæði góðri fitu og próteini og 4% af trefjum.

Oddný Anna Björnsdóttir, sjálfstæður ráðgjafi og hampræktandi í Gautavík í Berufirði.

Um helmingur af orkuinnihaldi fræsins er fita, þar af 94% ómettuð, sem er óvenju hátt hlutfall. Fitan inniheldur einstaklega hátt hlutfall hinna lífsnauðsynlegu fitusýra Omega 3 og 6, þ.m.t. Omega-3 SDA sem er öflugra form fitusýrunnar, í fullkomnu hlutfalli fyrir mannslíkamann (3:1) og GLA á formi sem líkaminn á sérstaklega auðvelt með að nýta. Um þriðjungur er hágæða og auðmeltanlegt prótein sem inniheldur 18 af þeim 20 amínósýrum (byggingareiningar próteina) sem líkaminn þarfnast, þ.m.t. þær 10 lífsnauðsynlegu sem líkaminn getur ekki framleitt sjálfur og þarf

því að fá úr mat. Af þeim sökum hafa fræin verið kölluð „hinn fullkomni próteingjafi“. Hampfræ eru einnig rík af vissum vítamínum og steinefnum. Í 3 msk (30 g) af fræjum er eftirfarandi hlutfall af ráðlögðum dagskammti: Mangan 99%, fosfór 71%, kopar 53%, magnesíum 52%, B1 32%, zink 27%, B3 17%, B6 14%, járn 13% og kalíum 8%. Heil hampfræ (með skel) eru trefjaríkari, því skelin inniheldur bæði uppleysanlegar og óuppleysanlegar trefjar sem hafa góð áhrif á meltinguna. Þau eru einstök að því leyti að þau innihalda ekki efnið fýtat, sem hindrar upptöku næringarefna og er algengt í korni, hnetum og fræjum, og er ástæðan fyrir því að mælt er með að þau séu lögð í bleyti fyrir neyslu. Hampfræ eru mjög góð uppspretta af arginíni og gamma-línólensýru sem rannsóknir hafa sýnt að dragi úr hættu á hjartasjúkdómum. Þau innihalda jafnframt plöntusteról sem hjálpa til við að draga úr magni kólesteróls í líkamanum með því að fjarlægja uppsafnaða fitu í æðaveggjum. Sýnt hefur verið fram á að neysla á hampfræjum geti gagnast við húðsjúkdómum og dregið úr exemi og óþægindum vegna þess. Þökk sé miklu magni af linalínsýru (GLA) geta hampfræ dregið úr einkennum sem tengjast PMS og tíðahvörfum. Hampfræjum er hægt að strá yfir salat, nota í bakstur, út á grauta eða jógúrt, í þeytinga eða sem snarl, t.d. út í hnetu- og ávaxtablöndur.

118


Hampolía Hægt er að vinna olíuna (fituna) úr fræjunum og kallast hún þá hampolía og er seld í glerflöskum í matvöruverslunum við hlið annarra matarolía. Mikilvægt er að velja kaldpressaða olíu því sú aðferð varðveitir best næringarefnin og bragðgæðin auk þess sem engin kemísk efni eru notuð. Hampolíu er gott að taka inn sér til heilsubótar, t.d. eina matskeið á morgnana, en rannsóknir hafa sýnt að hún geti dregið úr bólgum og aukið heilbrigði húðar og hárs. Olían hefur gagnast sem meðferð við bólum, exemi, sóríasis og flatskæningi og gefur hári meiri gljáa. Af þeim sökum er hún mikið notuð í allskyns húð-, hár- og snyrtivörur. Eins er hægt að bera hana beint á húð. Hampolía er ekki hitaþolin og hentar því ekki til steikingar. Hana er hægt að nota út á salat, pasta og eldað grænmeti, en rétt er að hafa í huga að hún er bragðmikil og hefur einkennandi bragð sem hefur verið líkt við hnetur.

Hampolíu er gott að taka inn sér til heilsubótar, t.d. eina matskeið á morgnana, en rannsóknir hafa sýnt að hún geti dregið úr bólgum og aukið heilbrigði húðar og hárs.

Hampmjólk Hampmjólk er búin til úr hampfræjum (án skelja) með því að blanda þeim saman við vatn í blandara og bæta út í smá salti og sætu/ bragðefnum ef vill, t.d. vanilludufti, hunangi, döðlum, kakói eða berjum. Blönduna má sigta með fíngerðu sigti eða spírupoka til að fá hana tæra en það er ekki nauðsynlegt. Hægt er að kaupa hana tilbúna í fernum eða gera hana sjálfur/sjálf heima. Úr hampfræjum er einnig framleitt jurtasmjör, -ostur, -smurostur, -jógúrt og fleira. Hampprótínduft og hamphveiti Próteinduft eru vinsæl fæðubótarefni meðal íþrótta- og vaxtaræktarfólks sem og þeirra sem eru að reyna að þyngjast eða auka vöðvamassa og er jafnan sett út í drykki, þeytinga og svokallaðar próteinskálar. Hamppróteinduft er búið til með því að fínmala fræ sem olían hefur verið pressuð úr, svokölluð fitusneydd frækaka. Mikilvægt er að kaldpressun hafi verið notuð þar sem heitpressun getur dregið úr meltanleika próteinsins um 10%. Það inniheldur meira magn af trefjum en önnur jurtapróteinduft eða um 26g í hverjum 100g, ólíkt eftir vörumerkjum. Hamphveiti eða hamptrefjaduft er einnig unnið úr fitusneyddri fræköku. Það er fínmalað og sigtað til að ná fram áferð hveitis. Það inniheldur töluvert minna prótein en próteinduftið, en afar hátt hlutfall trefja (um eða yfir 50%, breytilegt eftir vörumerkjum). Hamphveiti verður sífellt vinsælla í allskyns bakstur, bæði brauð og bakkelsi, en vegna þess hve bragðmikið það er, er það jafnan notað með öðru mjöli, en mælt er með hlutföllunum 1 á móti 3. Eins er hægt að bæta því út þeytinga, morgunkorn og jógúrt til að auka trefjainnihald.

Hampblöð og blóm Blöð hampplötunnar er hægt að djúsa, bæta í salat, heilsudrykki og þeytinga. Blómin og blöðin næst þeim er hægt að þurrka og nýta sem krydd- og tejurtir. Mikilvægt er að setja fitu, t.d. bragðlausa kókosolíu, út í hampteið ásamt sjóðandi vatni, þar sem hinir heilsusamlegu kannabínóðar eru fituleysanlegir. Af þeim sökum bæta teframleiðendur stundum kókosolíu út í tejurtirnar. Nánar verður fjallað um næringargildi og heilsufarslegan ávinning þeirra í næsta heilsublaði.

119


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.