Raunfærnimat fyrir aðstoðarþjón

Page 1

Nám aðstoðarþjóns Nám aðstoðarþjóns er tvær annir í skóla og 12 vikna starfsþjálfun. Þegar náminu er lokið skal aðstoðarþjónn hafa undirstöðuþekkingu og færni til að sinna öllum algengum störfum í veitingasal og vínstúku.

Hefur þú starfað í veitingasal og vilt ljúka námi aðstoðarþjóns?

Hægt er að bæta við sig frekara námi til að ljúka sveinsprófi í framreiðslu.

Þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig. DAGSVERK.IS / IDAN 0115

Nánari upplýsingar eru í síma 590 6400 eða með tölvupósti á radgjof@idan.is

Raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur og getur mögulega hjálpað þér að ljúka námi.

Vatnagörðum 20 104 Reykjavík

Sími 590 6400 Fax 590 6401

idan@idan.is www.idan.is


Hvað er raunfærnimat? Raunfærnimat er mat á þeirri færni og þekkingu í faginu sem þú hefur fengið í starfi og frítíma. Raunfærnimat getur stytt nám þitt. Að loknu raunfærnimati fara þátttakendur í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur til að útskrifast. Raunfærnimat er ekki tilslökun á þeim kröfum sem gerðar eru samkvæmt aðalnámskrá.

Inntökuskilyrði í raunfærnimat eru: • 23 ára lífaldur. • 3 ára starf í greininni, staðfest með opinberum gögnum t.d. lífeyrissjóðsyfirliti.

Ferill raunfærnimats Kynningarfundur • Nánari upplýsingar veittar um raunfærnimat. Viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa • Þar sem gögnum er skilað s.s. staðfestingu á vinnutíma og námsferli. Færniskráning • Skráning á fyrra námi, námskeiðum og annarri þekkingu. • Gátlistar – lagt er mat á eigin hæfni miðað við gildandi námskrá. Matsviðtal • Matsviðtal hjá fagaðila þar sem færni og þekking er metin. Áætlun um námslok • Náms- og starfsráðgjafi skoðar næstu skref með viðkomandi og hugar að námi.


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.